Annað útvarps viðtal varðandi málið var tekið 11. Desember 2020 af Kolfinnu Baldvinsdóttir sem hefur lagt sig mikið fram að fjalla um réttlætismál og margir leitað til hennar.
Í þessum viðtölum þá passaði ég upp á að nefna ekki eitt einasta nafn og hvergi nefnt eitt einasta nafn. En það þurfti ekki að bíða lengi þar til fósturforeldrar sendu inn harðorða kvörtum og mótmæli og ásökuðu mig um að nafnbirta fólk og dóttur mína sem þau hafa sakað mig um í báðum viðtölum.
Þegar ég kærði barnavernd til Velferðanefndar þá sendi ég mótsvar við þessum ásökunum með viðtölunum. En nefndin tekur allt fyrir sem mögulega er hægt er að snúa á móti föður en minnist ekkert á að rangt sé haldið fram af barnavernd eða fósturforeldrum gegn föður og llognar upp sakir á föður.
Fleyri upptökur eru til sönnunar fyrir lognum sökum Barnaverndarstarfsmanna. Þar er meðal annars yfirmaður barnaverndar Kópavogs Anna Eygló Karlsdóttir sem lýgur því blákallt að ég ráðist gegn henni sjálfri persónulega með fúkyrðum og öskrum og,ólátum en á sama tíma var kona á staðnum sem tók upp atburðinn og þar er sannleikurinn allt annað og ekki eitt aukatekið slæmt orð né læti eða fúkyrði gegn þessum yfirmanni barnaverndar Önnu Eygló Karlsdóttir.
